700 Gólf
Tveggja þátta Epoxy gólfefni sem er raka- og vatnsgufuþétt með möguleika á hálkuvörn.
700 GÓLF er tveggja þátta Epoxy fjölliðuefni án leysiefna og er algerlega raka og vatnsgufuþétt. Það samanstendur af glærum grunni og litaðri þykkmálningu sem yfirefni. Samanlögð efnisþykkt grunns og þykkmálningar er ca. 0,7 mm. Gólfefnið er í raun aðferð þar sem undirvinna byggist á sérstakri demantsslípun undilags. Efnið er síðan lagt á í þrefaldri þykkt miðað við hefbundin málningarkerfi án allra leysiefna. Hægt er að setja hálkuvörn í yfirborð gólfefnisins en um leið verður erfiðara að þrífa það.
700 GÓLF er tveggja þátta epoxy fjölliðuefni sem hentar vel þar sem er álag er í meðallagi. Það er án leysiefna og þykktin er 0,7mm. Gólfið samanstendur af glæru epoxy og litapöstu sem yfirefni.
Mikilvægt er að hafa í huga að loka árangur varðandi áferð fer að verulegu leyti eftir hve slétt og gott undirlagið er. Því byggist aðferðin við gólflögnina á því lykilatriði að vinna undirvinnu með sérstakri demantsslípun undilags. Samanlögð efnisþykkt grunns og þykkmálningar er ca. 0,7 mm.
Efnið er síðan lagt á, í þrefaldri þykkt miðað við hefbundin málningarkerfi en án allra leysiefna. Efnin eru lyktarlítil og menga ekki matvæli, hvorki við lögn né eftir lögn.
Gólfefnið er fáanlegt í stöðluðum RAL litum 7042- 6021- 5014 og 3009 en einnig er hægt að sérpanta RAL liti.
700 gólfefni er hægt að leggja í kverkar sem húlkíl. Efnin eru lyktarlítil og menga ekki matvæli, hvorki við lögn né eftir lögn. Bent skal á að loka árangur varðandi áferð fer að verulegu leyti eftir hve slétt og gott undirlagið er.
Hörðnunartími miðað við 20 C:
- Gangandi umferð: 24 klst
- Fullt álag: 5-7 dagar.