4000 Gólf
Samskeytalaust Epoxy gólfefni með háu slit- og efnaþoli, fáanlegt með bakteríu- og sveppavörn.
4000 GÓLF er þriggja þátta Epoxy fjölliðuefni sem hefur gott slit og efnaþol sem lagt er samskeytalaust á gólf og veggfleti. Það samanstendur af glæru Epoxy bindiefni og lituðum kvarssandi sem gefur efninu lit.
Hægt er að fá efnið matt, með hálkuvörn og Steritex bakteríu- og sveppavörn.
4000 GÓLF er þriggja þátta epoxy fjölliðuefni sem hentar vel þar sem gólf undir álagi. Þykktin er 3-4mm og það er lagt samskeytalaust á gólf og veggi. Efnið hefur gott slit og efnaþol. Það samanstendur af glæru og einlituðu epoxy bindiefni og lituðum kvarssandi.
4000 GÓLF samanstendur af eftirfarandi:
- Tveggja þátta epoxy grunnur, ætlaður er fyrir undirlag sem hefur verið demantsslípað eða blastrac hreinsað.
- Epoxy bindiefni / Lituðum kvartsmassa.
- Tveimur umferðum af glæru epoxy lakki.
4000 GÓLF fæst einnig:
- Matt
- Með hálkuvörn
- Steritex bakteríu og sveppavörn.
4000 gólfefni er hægt að leggja í kverkar sem húlkíl. Efnin eru lyktarlítil og menga ekki matvæli, hvorki við lögn né eftir á lögn. Mikilvægt er að hafa í huga að loka árangur varðandi áferð fer að verulegu leyti eftir hve slétt og gott undirlagið er.
Hörðnunartími miðað við 18-20 C:
- Gangandi umferð: 24 klst
- Fullt álag: 5-7 dagar.